Húnaþing vestra í 5.-8. sæti yfir draumasveitarfélög 2014

Tímaritið Vísbending, sem er vikurit um viðskipti og efnahagsmál, hefur mörg undanfarin ár skoðað hag 36 stærstu sveitarfélaganna á landinu og útnefnt draumasveitarfélagið, en það er það sveitarfélag sem er best statt fjárhagslega samkvæmt einkunnagjöf á nokkrum þáttum. Rétt er að undirstrika að einkunnagjöfin mælir fyrst og fremst fjárhagslegan styrk sveitarfélaganna en hann þarf ekki endilega að endurspeglast í lífsgæðum íbúanna.

 

Í ár var það Seltjarnarnes sem útnefnt var draumasveitarfélagið með einkunnina 9,3. Mikið ánægjuefni er að sjá stöðu Húnaþings vestra sem hlaut einkunnina 6,9 ásamt sveitarfélögunum sem höfnuðu í 5. – 8. sæti en þetta er hæsta einkunn sem Húnaþing vestra hefur hlotið til þessa í úttekt Vísbendingar eftir því sem næst verður komist. Útreikningar Vísbendingar miðuðust við rekstrartölur úr ársreikningum sveitarfélaganna 2013.

 

Þeir þættir sem lagðir voru til grundvallar við einkunnagjöfina eru eftirfarandi:

  • Skattheimtan þarf að vera sem lægst. Sveitarfélög með útsvarshlutfallið 13,66% fá 10 og sveitarfélög með hlutfallið 14,48% fá núll. Skalinn er í réttu hlutfalli þar á milli.
  • Breytingar á fjölda íbúa þurfa að vera hóflegar. Fjölgun á bilinu 1,6 til 3,6% gefur 10 og frávik um 1% frá þessum mörkum lækka einkunnina um einn heilan.
  • Afkoma sem hlutfall af tekjum á að vera sem næst 10%, sem gefur einkunnina 10. Dreginn er frá 1 fyrir hvert prósentustig sem sveitarfélag er fyrir neðan 10% hlutfall. Dreginn er einn þriðji frá 10,0 fyrir hvert prósentustig yfir 10%.
  • Hlutfall nettóskulda af tekjum sé sem næst 1,0. Frávik um 0,1 yfir þessu hlutfalli lækkar einkunnina um 1,0 frá einkunninni 10. Frávik um 1,0 fyrir neðan þetta hlutfall lækkar hana um 0,2. Ef skuldir eru mjög litlar getur það bent til þess að sveitarfélagið haldi að sér höndum við framkvæmdir. Þetta er breyting. Áður var miðað við frádrátt upp á 0,5.
  • Veltufjárhlutfall sé nálægt 1,0 (sem gefur 10) þannig að sveitarfélagið hafi góða lausafjárstöðu en hafi ekki of mikla peninga í lélegri ávöxtun. Frávik um 0,1 neðan við hlutfallið gefur 1 í frádrátt. Frávik um 0,1 fyrir ofan hlutfallið gefur 0,2 í frádrátt. Hlutfall yfir 2,0 gefur einkunnina 8. Þetta er breyting frá fyrra ári þegar það hlutfall gaf 5.

 Allir þessir þættir gilda jafnt.



einkunnir sveitarfélaga.jpg

Var efnið á síðunni hjálplegt?