Húnaþing vestra hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Húnaþing vestra hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Við erum stolt að tilkynna að Húnaþing vestra hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem við höfum verið á sem er að skapa vinnustað þar sem við höfum öll jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri. Til viðbótar þá eru kynjahlutföll í nefndum og ráðum sveitarfélagsins jöfn bæði ef litið er til heildarfjölda nefndarmanna í fastanefndum og formanna þeirra. Sveitarstjórn hefur enda lagt á það sérstaka áherslu að gæta að kynjajafnvægi við skipan í nefndir og ráð. 

Við þökkum Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna.  Jafnrétti er ekki verkefni sem hægt er að ljúka á einhverjum tímapunkti, heldur er stöðug vinna sem við höldum áfram að sinna af alúð.

Var efnið á síðunni hjálplegt?