Húnaþing vestra auglýsir starf þroskaþjálfa

Húnaþing vestra auglýsir starf þroskaþjálfa

Húnaþing vestra auglýsir 80-100% starf þroskaþjálfa á fjölskyldusviði með viðveru í leik- og grunnskóla. Önnur sérhæfð menntun sem nýtist í stafi með börnum kemur einnig til greina.

Um er að ræða ráðningu frá 1. september 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þátttaka í gerð og eftirfylgni einstaklingsáætlana.
  • Samstarf við fagfólk og aðstandendur.
  • Ráðgjöf og þjálfun starfsmanna grunn- og leikskóla vegna tiltekinna barna.
  • Þjálfun barna.
  • Gera frummat á þörfum einstaklinga eða aðstoða við að tryggja aðgang að slíku mati.
  • Skýrslugerð um einstaka mál sem viðkomandi hefur til meðferðar.
  • Önnur verkefni og teymisvinna á fjölskyldusviði.

 

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Þroskaþjálfamenntun eða önnur sérhæfð menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af vinnu með börnum með sérþarfir er kostur.
  • Færni í samskiptum og jákvæðni í starfi.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og teymisvinna.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.

 

Kjör og starfsskilyrði:

  • Starfið er launað samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

 

Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2026.
Umsóknum skal skilað rafrænt á alfred.is https://alfred.is/starf/hunathing-vestra-auglysir-starf-throskjathjalfa


Frekari upplýsingar veitir Sigurður Þór Ágústsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Húnaþings vestra, siggi@hunathing.is, 455-2400.

Var efnið á síðunni hjálplegt?