Húnasjóður

Húnasjóð stofnuðu hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra. Samkvæmt skipulagsskrá fyrir Húnasjóð sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 12. október 2000 skal sveitarsjóður leggja sjóðnum árlega til fé skv. fjárhagsáætlun hverju sinni. Árlegu framlagi Húnaþings vestra ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls skal úthluta í styrki á ári hverju.

Skriflegar umsóknir um styrk vegna ársins 2012 ásamt lýsingu á námi skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga á þar til gerðum eyðublöðum í síðasta lagi 11. júlí n.k.
Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins eða á heimasíðunni www.hunathing.is undir liðnum eyðublöð.

Sveitarstjóri.

Úthlutunarreglur Húnasjóðs.

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir eftirfarandi reglur um úthlutun námsstyrkja úr Húnasjóði.
Stjórn Húnasjóðs veitir árlega styrki úr sjóðnum. Eftirtaldir geta fengið fullan styrk úr sjóðnum;
Þeir sem stunda nám á háskólastigi þó ekki v/masters eða doktorsnáms.

Þeir sem stunda fagnám til starfsréttinda sem ekki eru á samningi við vinnuveitanda í starfsgrein sinni.
Háskólanemar- og nemar í fagnámi þurfa að vera á síðasta námsári eða að hafa lokið námi sínu til að geta fengið styrk.

Húnasjóður veitir einnig styrki vegna námskeiða ef talið er að þau styrki viðkomandi í starfi. Þó fæst ekki styrkur ef viðkomandi er styrktur af vinnuveitanda sínum. Styrkur vegna námskeiða er ekki greiddur út nema við framlagningu reikninga um kostnað viðkomandi námskeiðs.

Umsækjandi getur einungis fengið styrk einu sinni úr sjóðnum."

Var efnið á síðunni hjálplegt?