HROSS Í ÓSKILUM

1-2 vetra gamalt hesttryppi er í óskilum á Þóreyjarnúpi í Húnaþingi vestra.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ingvari Jóhannssyni búfjáreftirlitsmanni í síma 848-0003.

 

Sá sem getur sannað eignarrétt sinn að tryppinu fyrir 4. desember nk. fær það afhent gegn greiðslu áfallins kostnaðar.

Að öðrum kosti verður tryppið selt á opinberu uppboði að Þóreyjarnúpi af Sýslumanninum á Norðurlandi vestra föstudaginn 4. desember nk. kl. 16:00.

 

 

                                               Blönduós, 23. nóvember 2015

 

                                               Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra

Var efnið á síðunni hjálplegt?