Hreinsunarátak á suðursvæði Hvammstangahafnar 2026

Hreinsunarátak á suðursvæði Hvammstangahafnar 2026

Nú förum við í alsherjar hreinsunarátak á suðursvæði Hvammstangahafnar.

Þau sem eiga muni á svæðinu eru beðin um að vera í sambandi við Sigga hjá Hirðu varðandi tilfærslu og endurröðun. Síminn hjá honum er 8998918.

ATH. Að þessu sinni er ekki verið að ráðast í allsherjar tæmingu á svæðinu, aðeins tilfærlsu og uppröðun verðmæta.

Þá verður einnig ráðist í átak við að hreinsa svæðið af rusli sem liggur þar víða.

Gámar verða staðsettir á svæðinu á meðan á átakinu stendur, bæði fyrir járnarusl, sem og grófan úrgang.

Eigendur muna á svæðinu er boðið að henda í gámana endurgjaldslaust á meðan á átakinu stendur.

Við biðjum ykkur að henda ekki stórum hlutum í járnagáminn, heldur leggja þá upp við gáminn. Minna járn má fara beint í járnagáminn.

Heimilt er að geyma vagna á skráninganúmerum, á norðurkantinum, á meðan á átakinu stendur. Varahlutavagnar skulu fjarlægðir alveg.

Átakið stendur til 20. febrúar.

Þeim hlutum sem liggja á víðavangi og hefur ekki verið gert grein fyrir af eiganda verður fargað í lok febrúar.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 8237085.

Hlakka til að heyra í ykkur.

Heiða Jack, verkefnastjóri umhverfismála.

Var efnið á síðunni hjálplegt?