Hoppu-Belgur

Hoppu-Belgur

Hoppubelgur eða ærslabelgur eins og hann er oft kallaður hefur verið settur upp á Hvammstanga. Nokkrar staðsetningar voru skoðaðar með tilliti til ýmissa þátta s.s. landfræðilegra, aðgengis og nýtingar. Það þótti vert að prófa að koma belgnum fyrir miðsvæðis á Hvammstanga á svæði milli grunn- og leikskóla og vera með því í góðum tengslum við skóla- og leiksvæði. Belgurinn mun nýtast vel bæði fyrir frístundaheimili og leikskóla yfir sumartímann, auk þess að vera miðsvæðis í kauptúninu og í fallegu umhverfi.

Belgurinn er blásinn upp á daginn yfir sumartímann og liggur svo í dvala yfir veturinn.

Mikilvægt er að foreldrar og börn hafi það í huga að hoppubelgurinn er eign okkar allra og við hjálpumst við það í sameiningu að ganga vel um og fara eftir reglum. Allir eru á eigin ábyrgð á hoppubelgnum - Börn og ungmenni eru á ábyrgð forráðamanna.

  • Skóbúnað skal geyma fyrir utan belginn á meðan hoppað er. Ekki er leyfilegt að hoppa á belgnum í skóm.
  • Í rigningu og bleytu er ekki æskilegt að hoppa á belgnum, þar sem hann getur orðið mjög sleipur.
  • Halda skal svæðinu snyrtilegu. Muna að taka allt með sér þegar farið er; föt, sokka og rusl.
  • Sýna hvort öðru tillitssemi og virðingu á belgnum.

Hoppubelgurinn verður uppblásinn frá hádegi til kl. 20:00, alla daga í sumar.

Góða skemmtun að hoppa :)

Var efnið á síðunni hjálplegt?