Jæja nú hefur hoppubelgurinn verið blásinn upp.
Mikilvægt er að foreldrar og börn hafi það í huga að hoppubelgurinn er eign okkar allra og við hjálpumst við það í sameiningu að ganga vel um og fara eftir reglum. Allir eru á eigin ábyrgð á hoppubelgnum - Börn og ungmenni eru á ábyrgð forráðamanna.
- Skóbúnað skal geyma fyrir utan belginn á meðan hoppað er. Ekki er leyfilegt að hoppa á belgnum í skóm.
- Í rigningu og bleytu er ekki æskilegt að hoppa á belgnum, þar sem hann getur orðið mjög sleipur.
- Halda skal svæðinu snyrtilegu. Muna að taka allt með sér þegar farið er; föt, sokka og rusl.
- Sýna hvort öðru tillitssemi og virðingu á belgnum.
Hoppubelgurinn verður uppblásinn frá 10:00 til kl. 20:00 alla daga.
Góða skemmtun að hoppa :)