Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna

Landsátakið Hjólað í vinnuna hefst 6. maí næstkomandi.  Hvetjum öll fyrirtæki í Húnaþingi vestra stór sem smá að taka þátt þetta árið.

Hjólað í vinnuna snýst ekki bara um hjólreiðar heldur það að ferðast í vinnuna með virkum ferðamáta, ganga, hlaupa, hjóla og svo framvegis. Átakið stendur yfir í 3 vikur og er keppt í flokkum eftir stærð vinnustaða þannig að allir taka þátt á jafningja grundvelli. Húnaþing vestra mun veita viðurkenningu þeim fyrirtækjum í sveitarfélaginu sem standa sig best í keppninni þetta árið.

Drífum okkur af stað og tökum þátt í skemmtilegri og heilsusamlegri keppni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag og skráningu er að finna heimasíðu verkefnisins. swww.hjoladivinnuna.is.

Hjólreiðafólk er hvatt til að merkja hjólatengdar myndir og stöðuuppfærslur með myllumerkinu #hjolamal á samfélagsmiðlum 

Tanja Ennigarð
Íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnaþings vestra
sundlaug@hunathing.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?