Heitt vatn komið á að nýju á Hvammstanga

Viðgerð á bilun í dreifikerfi hitaveitunnar á Hvammstanga er lokið og er heitt vatn komið á að nýju norðan við Klapparstíg á Hvammstanga.  


Sviðstjóri veitu-, framkvæmda- og umhverfissviðs.

 

Þjónusturof hitaveitu - ábending til húsráðenda

1.  Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju með viðeigandi óhljóðum. 

2.  Húsráðendum er bent á að við viðgerðir kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að  skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.

3. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við pípulagningameistara.

Tengdar fréttir:

 

Heitavatnslaust norðan við Klapparstíg á Hvammstanga til kl. 19:00

Áríðandi tilkynning frá Hitaveitu Húnaþings vestra.

Var efnið á síðunni hjálplegt?