Heitavatnsviðgerð er lokið

Heitavatnsviðgerð er lokið

Starfsmenn hitaveitu hafa nú lokið við viðgerð dreifikerfis hitaveitunnar sem fram fór nú fyrr í dag. 

Húseigendur eru beðnir um að huga að eftirfarandi:

  1. Gætið þess að skrúfað sé fyrir alla krana til að koma í veg fyrir tjón þegar vatni er hleypt á að nýju.
  2. Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju með viðeigandi óhljóðum. Hugsanlega þarf að hleypa lofti af ofnum í kjölfarið.
  3. Húsráðendum er bent á að við viðgerðir kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.
  4. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við pípulagningameistara.

Veitusvið

Var efnið á síðunni hjálplegt?