Heimsókn í Snælduna - samþætta heimaþjónustu

Heimsókn í Snælduna - samþætta heimaþjónustu

Á dögunum komu fulltrúar félagsmálaráðuneytisins sem halda utan um verkefnið Gott að eldast í heimsókn í Snælduna heimaþjónustu á Hvammstanga.

Aðgerðaáætlunin Gott að eldast var samþykkt á Alþingi í maí árið 2023 og tekur til 19 aðgerða sem á að vera búið að ljúka í árslok 2027. Aðgerðirnar eru mismunandi, sumar ívið umfangsmeiri en aðrar en allar eiga það sameiginlegt að stuðla að bættum lífsgæðum eldra fólks. Sex heilbrigðisumdæmi og tuttugu og tvö sveitarfélög taka þátt í verkefninu.  

Mikil áhersla hefur verið á samþætta heimaþjónustu og heimahjúkrun og hafa samningar verið undirritaðir í sex sveitarfélögum á milli heilbrigðis- og félagsþjónustu, eitt þeira er Húnaþing vestra, en önnur eru Mosfellsbær, Hveragerði, Dalvíkurbyggð, Vesturbyggð,  og Árborg. Í framhaldi af undirritun samnings milli Húnaþings vestra og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands varð Snældan heimaþjónusta til og hefur breytt þjónustuaðgengi mælst vel fyrir hjá notendum.

Nánari upplýsingar um Snælduna er að finna hér.

Var efnið á síðunni hjálplegt?