Heimsókn frá Rannsóknarsetri HÍ á Norðurlandi vestra

Sæunn Stefánsdóttir, forstöðukona stofnunar Rannsóknasetra Háskóla Íslands, Unnur Valborg Hilmarsdót…
Sæunn Stefánsdóttir, forstöðukona stofnunar Rannsóknasetra Háskóla Íslands, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri og Vilhelm Vilhelmsson, forstöðumaður Rannsóknarseturs Norðurlands vestra.

Sæunn Stefánsdóttir, forstöðukona Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands og Vilhelm Vilhelmsson, forstöðumaður setursins á Norðurlandi vestra komu í heimsókn í Ráðhúsið í dag og funduðu með sveitarstjóra. Tilefni heimsóknarinnar var að kynna starfsemi setursins og skoða möguleika á samstarfi þess og sveitarfélagsins. Færðu þau jafnframt þær ánægjulegu fréttir að frá og með 1. september hefur setrið tekið á leigu skrifstofuaðstöðu á Hvammstanga. Styrkir það starfsemi þess enn frekar og gefur tækifæri til eflingar starfseminnar.

Við þökkum Sæunni og Vilhelm fyrir komuna. 

Var efnið á síðunni hjálplegt?