Hefurðu áhuga á að virkja lækinn þinn?

Hefurðu áhuga á að virkja lækinn þinn?

Tilgangur smávirkjanasjóðs Norðurlands vestra er að styrkja fyrstu skrefin í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum undir 10 MW að stærð á Norðurlandi vestra.  

Sjóðurinn veitir styrki til: 

  • Skref 1: Frummat smávirkjana.

  • Skref 2: Mat á virkjanlegu rennsli, frummat hönnunar og byggingarkostnaðar.

 

Að þessu sinni er auglýst eftir umsóknum í Skref 1: Frummat smávirkjana. Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2020.

Öll gögn varðandi umsóknarferlið er að finna á heimasíðu SSNV.  

 

Umsóknir skulu sendar á netfangið: ssnv@ssnv.is.  

Nánari upplýsingar veitir Ingibergur Guðmundsson, ingibergur@ssnv.is, s. 892 3080. 

Var efnið á síðunni hjálplegt?