Hefur þú brennandi áhuga á veitustörfum?

Hefur þú brennandi áhuga á veitustörfum?

Húnaþing vestra óskar eftir að ráða í framtíðarstöðu áhugasaman, jákvæðan og úrræðagóðan vélamann í þjónustumiðstöð sveitarfélagsins á sviði veitna.

Húnaþing vestra rekur vatnsveitu- og fráveitukerfi á Hvammstanga, Laugarbakka, Borðeyri og Reykjum í Hrútafirði. Hitaveita Húnaþing vestra rekur þrjár borholur sem staðsettar eru á Laugarbakka, Reykjartanga og Borðeyri þar sem heitu vatni er dreift vítt og breytt um sveitafélagið.

Starfsmaður veitna sinnir daglegum rekstri dreifikerfis, viðhaldi, endurnýjun og gætir rekstraröryggis allra veitna en þarf einnig að sinna öðrum verkefnum sem til falla.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af veitustarfssemi er kostur.
  • Full vinnuvélaréttindi skilyrði.
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Rík þjónustulund.

Ráðning í starfið er frá 1. janúar 2022.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Benedikt Rafnsson, veitustjóri í síma 455-2400 og netfanginu benedikt@hunathing.is.

Umsóknum skal skila á netfangið benedikt@hunathing.is fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 27.október nk.

Starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi skal fylgja starfsumsókn.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?