Hátíðarhöld á sumardaginn fyrsta

Frá hátíðarhöldunum 2023.
Frá hátíðarhöldunum 2023.
Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur á hefðbundinn hátt þann 24. apríl nk. Hátíðin hefst með skrúðgöngu frá Félagsheimilinu Hvammstanga klukkan 13:00. Farinn verður hefðbundinn hringur með viðkomu á Sjúkrahúsinu. Að lokinni skrúðgöngu verður boðið til hátíðar í Félagsheimilinu. Þar afhendir m.a. Vetur konungur Sumardísinni veldissprota sinn. Börn úr fyrsta og öðrum bekk grunnskólans skemmta með söng.
 
Öllum er boðið upp á vöfflur og kakó. Á eftir verða spilaðar nokkrar umferðir í bingó þar sem glæsilegir vinningar verða í boði.
 
Öll dagskráin er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir.
 
Allt frá árinu 1957 hefur sumardagurinn fyrsti verið haldinn hátíðlegur í Húnaþingi vestra. Upphaflega var hátíðin haldin til fjáröflunar Fegrunarfélagsins fyrir gróðursetningu í sjúkrahúsgarðinum á Hvammstanga. Í dag er sá garður orðinn stór og þéttur skógur. Þó hátíðin hafi ekki verið með nákvæmlega sama sniði öll þessi ár hefur Vetur konungur þó alltaf afhent Sumardísinni veldissprotann og hafa þau verið klædd í búningana sem forvígiskonur hátíðarinnar saumuðu. Frá upphafi og til ársins 2022 hélt Ingibjörg Pálsdóttir (Lilla) utan um hátíðarhöldin með aðstoð fjölskyldu sinnar og ýmissa félagasamtaka. Árið 2023 sá Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra um hátíðahöldin en auk þess að sjá um hátíðina sjálfa sáu þau um endurnýjun búninga en þar til þá höfðu upprunalegu búningarnir verið notaðir. Félagið sá svo einnig um hátíðahöldin árið 2024. Í ár er það Foreldrafélag Leikskólans Ásgarðs sem hefur umsjón með hátíðinni og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir.

 

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?