Hátíðarhöld á sumardaginn fyrsta

Mynd frá hátíðarhöldunum fyrr á árum.
Mynd frá hátíðarhöldunum fyrr á árum.

Allt frá árinu 1957 hefur sumardagurinn fyrsti verið haldinn hátíðlegur í Húnaþingi vestra. Upphaflega var hátíðin haldin til fjáröflunar Fegrunarfélagsins fyrir gróðursetningu í sjúkrahúsgarðinum á Hvammstanga. Í dag er sá garður orðinn stór og þéttur skógur. Þó hátíðin hafi ekki verið með nákvæmlega sama sniði öll þessi ár hefur Vetur konungur þó alltaf afhent Sumardísinni veldissprotann og hafa þau verið klædd í búningana sem forvígiskonur hátíðarinnar saumuðu.  Ingibjörg Pálsdóttir (Lilla) hefur frá upphafi haldið utan um hátíðarhöldin með aðstoð frá ýmsum félagasamtökum en síðustu ár hefur fjölskylda hennar ásamt henni staðið fyrir hátíðinni. 

Á síðasta ári, þegar 65 ár voru frá því að fyrsta hátíðin var haldin, tilkynnti Sigurður Helgi Oddsson, sonarsonur Lillu, að það yrði í síðasta skiptið sem Lilla stæði fyrir hátíðarhöldunum. Búningarnir sem notast hefur verið við hafa nú verið gefnir á Verslunarminjasafnið á Hvammstanga og verða þar til sýnis til marks um það ómetanlega starf sem Lilla hefur unnið. Eru Lillu færðar bestu þakkir fyrir sitt mikla framlag til menningarstarfs í sveitarfélaginu með hátíðarhöldunum um áratuga skeið sem og þeim fjölmörgu sem hafa komið að þeim með einum eða öðrum hætti í gegnum árin.

Hátíðarhöldin hafa vakið athygli um land allt. Árið 2015 fjallaði Landinn á RÚV um sögu þessa merku hátíðarhalda. Umfjöllunin er aðgengileg hér. 

Þar sem hefðin fyrir valdaskiptum Veturs konungs og Sumardísar er mjög rík í samfélaginu í Húnaþingi vestra mun sveitarfélagið leggja sitt af mörkum til að svo megi vera áfram. Í því augnamiði hefur nú verið samið við Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra um að taka hátíðina að sér í ár ásamt því að sauma nýja búninga sem koma eiga í stað þeirra sem voru orðnir lúnir eftir 65 ára notkun. Búningarnir sem nú verða gerðir eiga að endast um komandi ár sem vonandi verður til þess að hátíðin haldi áfram að skipa þann órofa sess í samfélaginu líkt og hún hefur gert undanfarna áratugi. 

Frá undirritun samkomulags við Félag eldri borgara um framkvæmd hátíðarhaldanna í ár. Jónína Sigurðardóttir varaformaður félagsins, Unnur Valborg sveitarstjóri og Guðmundur Haukur Sigurðsson formaður Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra.

Var efnið á síðunni hjálplegt?