Hátíðahöld á sumardaginn fyrsta 2026

Hátíðahöld á sumardaginn fyrsta 2026

Allt frá árinu 1957 hefur sumardagurinn fyrsti verið haldinn hátíðlegur í Húnaþingi vestra. Upphaflega var hátíðin haldin til fjáröflunar Fegrunarfélagsins fyrir gróðursetningu í sjúkrahúsgarðinum á Hvammstanga. Í dag er sá garður orðinn stór og þéttur skógur. Þó hátíðin hafi ekki verið með nákvæmlega sama sniði öll þessi ár hefur Vetur konungur þó alltaf afhent Sumardísinni veldissprotann og hafa þau verið klædd í búningana sem forvígiskonur hátíðarinnar saumuðu. Frá upphafi og til ársins 2022 hélt Ingibjörg Pálsdóttir (Lilla) utan um hátíðarhöldin með aðstoð fjölskyldu sinnar og ýmissa félagasamtaka. Í ár ákvað starfsmannafélag leikskólans að taka þetta að sér og viljum við þakka þeim innilega fyrir að viðhalda þessum flotta og rótgróna viðburði í samfélaginu okkar.

Sumardaginn fyrsta ber upp á 23. apríl í ár. Haldið verður upp á daginn með hefðbundum hætti. Skrúðgangan frá Félagsheimilinu hefst klukkan 14:00. Farinn verður hefðbundin hringur með viðkomu á Sjúkrahúsinu. Að lokinni skrúðgöngu verður boðið til hátíðar í Félagsheimilinu. Þar afhendir m.a. Vetur konungur Sumardísinni veldissprota sinn. Börn úr fyrsta og öðrum bekk grunnskólans skemmta með söng.

Að þessu loknu er boðið í sumarkaffi. Á eftir verða spilaðar nokkrar umferðir í bingó þar sem glæsilegir vinningar eru í boði. Fyrsta bingóspjaldið er frítt svo allir geta tekið þátt en auka spjöld eru á 500 kr. Það er ekki posi á staðnum og er því bara tekið við reiðufé.

Hlökkum til að sjá ykkur öll í sumarskapi. 

Var efnið á síðunni hjálplegt?