Grunnskóli Húnaþings vestra leggur til námsgögn

Grunnskóli Húnaþings vestra leggur til námsgögn

Grunnskóli Húnaþings vestra leggur til námsgögn fyrir nemendur skólans þeim að kostnaðarlausu

Byggðarráð Húnaþings samþykkti á fundi sínum þann 10. ágúst sl. að Grunnskóli Húnaþings vestra leggi til námsgögn fyrir nemendur skólans þeim að kostnaðarlausu.  Um er að ræða stílabækur, ritföng, reiknivélar ofl.  Í haust verði því engir innkaupalistar, en foreldrar þurfa samt sem áður að sjá börnum sínum fyrir skólatösku, sund- og íþróttafatnaði ásamt ritföngum til afnota heima fyrir. 

Grunnskólinn verður settur miðvikudaginn 23. ágúst nk.

Var efnið á síðunni hjálplegt?