Nemendur 8., 9. og 10. bekkja Grunnskóla Húnaþings vestra fengu nýverið tækifæri til að kynnast störfum viðbragðsaðila á svæðinu í
tengslum við björgunarsveitarval sem þau hafa verið í við skólann í vetur. Krakkarnir hafa á önninni fengið að kynnast störfum allra helstu viðbragðsaðila á svæðinu og var ákveðið að ljúka valinu með sameiginlegri æfingu þar sem líkt var eftir alvarlegu bílslysi.
Á æfingunni fengu nemendur að fylgjast með hvernig unnið er þegar alvarlegt umferðarslys verður og hvernig mismunandi viðbragðsaðilar þurfa að vinna náið saman þegar stærri atvik eiga sér stað. Að æfingunni komu slökkvilið, sjúkraflutningamenn, læknir, lögregla og Björgunarsveitin Húnar. Nemendur fengu bæði hlutverk í æfingunni, meðal annars sem sjúklingar, og einnig tækifæri til að fylgjast með og fræðast um leið.
Í æfingunni fengu nemendur meðal annars að sjá hvernig einstaklingur er losaður úr bílflaki, hvernig fyrstu viðbrögð og sjúkraflutningar fara fram og hvaða búnaður er notaður við slíkar aðstæður.
Með því að sjá af eigin raun afleiðingar alvarlegra slysa, mikilvægi bílbeltanotkunar og hvernig viðbragðsaðilar vinna saman þegar neyð skapast fá nemendur vonandi betri skilning á ábyrgð sinni í umferðinni. Fræðsla sem þessi getur haft áhrif til framtíðar, stuðlað að aukinni öryggisvitund meðal ungs fólks og jafnvel vakið áhuga þeirra á að verða hluti af viðbragðsteymi í sveitarfélaginu síðar meir.
Viðbragðsaðilar þakka nemendum fyrir áhugann og góða þátttöku.

Myndir: Eydís Ósk Indriðadóttir