Gott gengi á Landsmóti UMFÍ 50+

Ringó lið USVH vann gullverðlaun á mótinu.
Ringó lið USVH vann gullverðlaun á mótinu.

Landsmót Ungmennafélags Íslands fyrir 50 ára og eldri fór fram á Hrafnagili um helgina. Það er óhætt að segja að keppnislið USVH hafi gert góða ferð á mótið en þau komu heim með fjölmörg verðlaun. 

  • Lið USVH 2 varð í þriðja sæti í Boccia. Liðið skipuðu Elías Guðmundsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Sigríður Magnúsdóttir. Alls kepptu 35 lið.
  • Í kvennapílu, 501 SIDO urðu þær Sigurbjörg Jóhannesdóttir og Aðalheiður Sveina Einarsdóttir jafnar í 3-4 sæti.
  • Í 9 pílum kvenna varð Bára Guðbjartsdóttir í öðru sæti og Sigurbjörg Jóhannesdóttir í þriðja sæti.
  • Lið USVH 1 í Ringó fór með sigur úr bítum. Liðið skipuðu Aðalheiður Einarsdóttir, Guðmundur Jóhannesson, Helgi Þór Kristjánsson, Már Hermannsson, Garðar Jónsson og Gunnar Sveinsson.
  • Í karlaflokki í frisbígolfi sigraði Jón Haukdal Kristjánsson og í kvennaflokki Bára Guðbjartsdóttir.
  • Laufey Sigurðardóttir lenti í 4. sæti í pokavarpi en alls voru 40 keppendur skráðir til leiks.
  • Í sundi komu Andrea Laible og Helgi Þór Kristjánsson heim með tvenn verðlaun hvort. 
  • Sigurbjörg Jóhannesdóttir vann til fernra verðlauna í frjálsum íþróttum. Hún varð í 3. sæti í kúluvarpi, 2. sæti í lóðkasti, 2. sæti í spjótkasti og þriðja sæti í þrístökki án atrennu. 

Við óskum keppendum innilega til hamingju með árangurinn. Hér að neðan er að finna nokkrar myndir frá Guðmundi  Hauki Sigurðssyni af verðlaunahöfum. 

Þátttakendur USVH í Boccia á mótinu.

Jón Haukdal og Bára Guðbjartsdóttir sigurvegarar í frisbígolfi.

Bára Guðbjartsdóttir sótti silfur í 9 pílum.

Andrea Laible vann til tveggja verðlauna í sundi.

Helgi Þór Kristjánsson vann til tveggja gullverðlauna í sundi.

Laufey Sigurðardóttir lenti í fjórða sæti í pokavarpi.

Ringó liðið var sigursælt og sótti gullið.

Var efnið á síðunni hjálplegt?