Gott gengi á Landsmóti UMFÍ 50+

Jónína og Halldóra fagna sigri í pönnukökubakstrinum. Mynd: Guðmundur Sigurðsson af facebook síðu Fé…
Jónína og Halldóra fagna sigri í pönnukökubakstrinum. Mynd: Guðmundur Sigurðsson af facebook síðu Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra.

Landsmót Ungmennafélags Íslands fyrir 50 ára og eldri fór fram um nýliðna helgi. Keppendur úr Húnaþingi vestra stóðu sig frábærlega sóttu þar nokkur verðlaun. 

  • Agnar Eggert Jónsson hreppti fyrsta sæti í pokavarpi.
  • Jóna Halldóra Tryggvadóttir sótti fyrsta sætið í pönnnukönubakstri og Jónína Sigurðardóttir það þriðja.
  • Jónína Sigurðardóttir kastaði sig í þriðja sæti í 501 SIDO leik í pílu.
  • Helgi Þór Kristjánsson varð í 2. sæti í sínum aldursflokki í 50 og 100 metra skriðsundi.

Við óskum keppendum innilega til hamingju með árangurinn. 

Var efnið á síðunni hjálplegt?