Gjöf til Velferðarsjóðs

Gjöf til Velferðarsjóðs

Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka kom á fund stjórnar Velferðarsjóðs Húnaþings vestra fimmtudaginn 7. desember sl. og færði sjóðnum að gjöf kr. 650.000.

Ólöf hefur unnið að gerð bútasaumsdúka og -teppa undanfarin ár og hefur afraksturinn verið afar vinsæll bæði innan og utan héraðs.

Styrktarfjárhæð Ólafar til Velferðarsjóðsins er líkt og undanfarin sex ár afrakstur sölu umliðins árs og hefur Ólöf styrkt sjóðinn mjög myndarlega síðastliðin ár eða kr. 4.000.000 á sjö árum.

Stjórn Velferðarsjóðs er afar hrærð og glöð yfir þessu myndarlega og göfuga framtaki Ólafar og þakklát fyrir þann fallega hug sem býr að baki.

 

Texti undir mynd: F.v. Magnús Magnússon, Ólöf Ólafsdóttir, Sigurður Þór Ágústsson og Elísa Ýr Sverrisdóttir.

Var efnið á síðunni hjálplegt?