Gjöf til nýfæddra íbúa Húnaþings vestra

Gjöf til nýfæddra íbúa Húnaþings vestra

Á árinu 2023 mun Húnaþing vestra færa nýbökuðum foreldrum í sveitarfélaginu litla gjöf til að bjóða nýfædda íbúa velkomna í heiminn. Gjöfin samanstendur af samfellu, slefsmekk, bleijupakka, snuði, pela og sýnishornum af vörum sem henta vel fyrir nýburann og brjóstagjöfina. "Með gjöfinni viljum við undirstrika áherslu okkar á fjölskylduvænt samfélag. Hér í sveitarfélaginu er afar gott umhverfi fyrir barnafjölskyldur og viljum við með þessu halda áfram að styrkja það umhverfi enn frekar. Við vonum að gjöfin komi að góðum notum og hlökkum til að taka vel á móti börnum sem koma í heiminn í sveitarfélaginu á árinu" segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?