Gjafir handa sýrlensku börnunum

Anton Scheel Birgisson og Liljana Milenkoska verkefnastjóri.
Anton Scheel Birgisson og Liljana Milenkoska verkefnastjóri.

Í dag kom Anton Scheel Birgisson færandi hendi á skrifstofu sveitarfélagsins og afhenti fyrir hönd ömmu sinnar, Helgu Kristinsdóttur frá Þorlákshöfn, öllum sýrlensku börnunum vettlinga og ullarsokka.   Helga er 80 ára og þegar hún heyrði af komu flóttamannanna í Húnaþing vestra þá vildi hún leggja sitt af mörkum og sagðist ekki hafa neitt betra að gera en prjóna á þau þrettán börn sem komu á Hvammstanga. 

Á myndinni tekur Liljana Milenkoska við gjöfinni fyrir hönd sýrlensku barnanna og við færum Helgu Kristinsdóttur þakkir fyrir hlýhuginn.

Var efnið á síðunni hjálplegt?