Gangnaseðill Víðdælinga haustið 2016

Göngur hefjast á Víðidalstunguheiði mánudaginn 5. september 2016.

Þann dag fari rekstrarmenn gangnahrossa af stað frá Hrappsstöðum kl.11:00.

Þeir sem verða keyrðir  mæti að Hrappsstöðum kl. 17.

Næsta dag fari seinniflokkur þaðan á sama tíma, eða kl.17.

Farangur, þar með talin reiðtygi og öll gangnahross verða að vera komin kl. 10 mánudaginn 5. september í  Hrappsstaði 

Í fyrri göngum skal smalað bæði sauðfé og hrossum. Sauðfé verður réttað í Valdarásrétt föstudaginn 9. Sept kl.09:00 og í Víðidalstungurétt laugardaginn 10. sept. og hefjast réttarstörf þar kl. 10:00.

Seinni göngur hefjast miðvikudaginn 21. september og verður heiðin leituð á þremur dögum.

Fæði verður í göngum í öllum náttstöðum á heiðinni. 

Föstudaginn 30.september skulu þeir sem tilgreindir eru á gangnaseðli sækja stóð í löndin norðan heiðargirðingar. Þeir smali einnig sauðfé. Þeir sem eru tilgreindir til að smala Stóru – Hlíð og Krók smali öllu vestur í Krók.

Stóðið verður réttað í Víðidalstungurétt laugardaginn 1. okt og verður stóðið  rekið til réttar kl 10:00 þann dag. Talning hrossa fer eingöngu fram í aðalrétt  og verður gefinn 30% afsláttur af framtöldum hrossum sem ekki hafa gengið á heiði.

Óheimilt er að taka hross úr réttinni fyrir talningu þeirra.

Fyrri heimalanda smölun fari fram laugardaginn 17. september og réttað verði í Víðidalstungurétt sunnudaginn 18. sept kl: 10:00.

Seinni heimalanda smölun verður laugardaginn 8. október og réttað í Víðidalstungurétt sunnudaginn 9.okt kl:10:00.

Ítrekum skyldur landeigenda til að gera skil á sínum löndum.

Þeir sem ekki eru tilgreindir sem rekstrarmenn gangnahrossa en ætla sér að fara ríðandi fram láti vita til formanns fjallskilanefndar fyrir kl 20 sunnudagskvöldið 4. september.

Ætli menn að ríða með rekstramönnum þurfa þeir að ræða það við gangnastjóra.

Fólk sem hyggst fara með gangnamönnum skal afla sér leyfis gangnastjóra. Einnig er þeim bent á að panta fæði hjá ráðskonu með góðum fyrirvara. Allar nánari upplýsingar veitir formaður fjallskilanefndar, Maríanna í síma: 896 3130.

Hey- og fæðisgjald fyrir aukafólk sem fer með gangnamönnum er kr. 3.500 per dag.

Athygli skal vakin á því að engan má senda í göngur yngri en 16. ára, samkvæmt 16.gr Fjallskilareglugerðar  Húnaþings vestra.

Gangnastjórar og aðrir sem tilgreindir eru í gangnaseðli til að hafa umsjón með fjallskilum, skipa nánar fyrir um framkvæmd þeirra. 

Tímakaup vegna aukaverka: verður 2.500 kr. fyrir mann og fyrir hjól 2.500 kr., hvort tveggja samkvæmt reikningi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?