Gagnstéttaframkvæmdir á Hvammstanga

Frá steypuvinnu við gangstétt í Fífusundi
Frá steypuvinnu við gangstétt í Fífusundi

Síðustu daga hefur farið fram vinna við gangstéttar á Hvammstanga. Steypt var gangstétt á Kirkjuvegi fyrir ofan Grunnskólann og norður að gatnamótum. Einnig var steypt gangstétt við nýtt stæði fyrir skólabíla í Fífusundi, neðan við Grunnskólann. Báðar framkvæmdir eru liður í uppyggingu á skólalóð í tengslum við viðbyggingu Grunnskólans. Þessu til viðbótar voru gangstéttar við Norðurbraut lagfærðar eftir hitaveituframkvæmdir í götunni en brjóta þurfti upp gangstéttar á nokkrum stöðum vegna heimtauga. 

Var efnið á síðunni hjálplegt?