Gæsaveiði 2020

Gæsaveiði 2020

Fyrirkomulag gæsaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2020:

 

1.  Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til gæsaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða leyfi á þrjú svæði.

Svæðin eru:  

1. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði austan Víðidalsár ásamt jörðinni Öxnatungu.

2. Víðidalstunguheiði vestan Víðidalsár ásamt jörðunum Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Króki.

3. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.

2.  Hvert veiðileyfi gildir þann dag sem tilgreindur er á viðkomandi leyfi og er útgefið innan þess gæsaveiðitíma sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2020. Leyfið veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma.

3.  Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000,- á dag. 

4.  Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum.   Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

5.  Með vísan til 7. greinar Fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra er óheimilt að nýta hunda og flygildi (dróna) til veiða fyrr en fyrstu göngum á viðkomandi afrétti er lokið.

6.  Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.   

Kort af veiðisvæðum má finna hér:

Gæsaveiðisvæði 1 og 2 - Víðidalstunguheiði

Gæsaveiðisvæði 3 - Arnarvatnsheiði og Tvídægra

Veiðisvæði miðast eingöngu við eignarlönd sveitarfélagsins. Athugið að nokkrar ónákvæmni gætir í kortunum, unnið er að gerð nýrra korta.

Sveitarstjóri

 

Veiðileyfi verða eingöngu seld hjá Ferðaþjónustunni Dæli sími 451 2566.  Netfangið er daeli@daeli.is.   Allar upplýsingar um gæsaveiðar á þessu svæði eru veittar í Dæli.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?