Gærurnar styrkja Brunavarnir Húnaþings

Gærurnar styrkja Brunavarnir Húnaþings

Brunavörnum Húnaþings vestra barst á dögunum myndarlegur styrkur frá Gærunum til kaupa á búnaði fyrir slökkviliðsmenn liðsins. Að þessu sinni var styrknum varið í kaup á ullar undir fatnaði og nýjum vinnuvettlingum á alla liðsmenn. Framlag þeirra kvenna sem standa að þessu óeigingjarna framtaki, að safna og selja af nytjamarkaði og skila út í samfélagið í formi styrkja verður seint full þakkað. Það er mikilvægt fyrir sveitarfélag eins og okkar að eiga svo öflugar konur á svæðinu sem láta sig málin sig varða og koma að styrkveitingum hvers konar. Takk fyrir okkur.

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?