Fyrirkomulag rjúpnaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2026.
Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfis- og orkustofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins. Í boði verða tvenns konar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði, en þau eru;
a) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og eignarhlut Húnaþings vestra í Öxnártungu (svæði 1).
b) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru (svæði 2).
Rjúpnaveiðisvæði í landi Húnaþings vestra má sjá HÉR:
Svæði 1 - Vesturhluti Víðidalstunguheiðar, lönd Stóra Hvarfs, Stóru Hlíðar og Öxnartungu. Sjá kort HÉR.
Svæði 2 - Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru. Sjá kort HÉR
Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á ákveðna daga á veiðitíma rjúpu sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2026 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.
Veiðileyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu og skulu pöntuð með tölvupósti á netfangið hallfridur78@gmail.com. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 15.000 á dag.
Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við 4 byssur á dag en 5 byssur á svæði 2 og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.
Í samræmi við 17. tölul. 1.mgr. 9. gr laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64/1994 er notkun á vélknúnum ökutækjum utan vega eða vegslóða bönnuð. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.
Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er ákveðið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.
Sveitarstjóri
(Eftirfarandi birt með fyrirvara um breytingar):
Rjúpnaveiði í Víðidal
Rjúpnaveiði í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða, Gafls og Lækjarkots í Víðidal (svæði 3) verður eins og undanfarin haust takmörkuð.
- Frá 23. október – 17. nóvember eru seld leyfi í eignarlandi Húnaþings vestra í Gafli sunnan Gaflsgjár og Lækjarkots, 4 byssur á dag.
- Frá 7. – 17. nóvember eru seld leyfi í löndum Syðra-Kolugils og Hrappsstaða þrjár byssur á dag sem og Gafls og Lækjarkots fjórar byssur á dag alls 7 byssur á dag. Sjá kort hér HÉR
Veiðileyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu og skulu pöntuð með tölvupósti á netfangið hallfridur78@gmail.com. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 15.000 á dag.
Landeigendur