Fyrirhugaðar ljósleiðaraframkvæmdir á Laugarbakka

Laugarbakki. Mynd: Markaðsstofa Norðurlands.
Laugarbakki. Mynd: Markaðsstofa Norðurlands.

Á heimasíðu Mílu eru til kynningar áform um lagningu ljósleiðara á Laugarbakka sumarið 2025.  Í framhaldi af lagningu og tengingu ljósleiðarans í hús verða koparlínur aflagðar. 

Kort af framkvæmdinni er aðgengilegt á heimasíðu Mílu.

Verkefnið er liður í samningi Húnaþings vestra og Mílu um lok ljósleiðaravæðingar á Hvammstanga og Laugarbakka með styrk frá  Fjarskiptasjóði. Styrkurinn nær til húsa þar sem skráð er lögheimili.

Athygli er vakin á því að þeim sem kunna að hafa áhuga á að samnýta framkvæmdir á þessu svæði er bent á að hafa samband við Mílu með tölvupósti á mila@mila.is til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina.

Var efnið á síðunni hjálplegt?