ATH!! Frístundakort 2021

Gefin hafa verið út frístundakort vegna ársins 2021 fyrir börn á aldrinum 6-18 ára sem lögheimili eiga  í Húnaþingi vestra.  Foreldrar/forráðamenn þurfa að sækja kortin á skrifstofu Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5, Hvammstanga og kvitta fyrir móttöku þeirra.  Þeir sem vilja nýta kortið sem innborgun á tónlistarskólagjöld geta sent tölvupóst þess efnis á netfangið: skrifstofa@hunathing.is 

Athugið að frístundakortin renna út 31. desember ár hvert og því er æskilegt að búið sé að ráðstafa frístundakortunum fyrir 15. desember 2021.

Foreldri/forráðamaður þarf að framvísa persónuskilríki til að fá kortið afhent. Skila þarf inn skriflegu umboði ef afhenda á kortið öðrum en foreldri/forráðamanni. Reglur um notkun frístundakortanna er að finna inn á heimasíðu sveitarfélagsins undir reglugerðir og samþykktir. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400.

                                               Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs

Var efnið á síðunni hjálplegt?