Gefin hafa verið út frístundakort vegna ársins 2019 fyrir börn á aldrinum 6-18 ára sem lögheimili eiga í Húnaþingi vestra. Foreldrar/forráðamenn þurfa að sækja kortin á skrifstofu Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5, Hvammstanga og kvitta fyrir móttöku þeirra. Þeir sem vilja nýta kortið sem innborgun á tónlistarskólagjöld geta sent tölvupóst þess efnis til skrifstofa@hunathing.is
Foreldri/forráðamaður þarf að framvísa persónuskilríki til að fá kortið afhent. Skila þarf inn skriflegu umboði ef afhenda á kortið öðrum en foreldri/forráðamanni. Reglur um notkun frístundakortanna er að finna inn á heimasíðu sveitarfélagsins undir reglugerðir og samþykktir. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400.
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs.