Fréttatilkynning vegna stofnunar nýs byggðasamlags um þjónustu við fatlað fólk á vestanverðu Norðurlandi.

Á stofnfundi nýs byggðarsamlags sem haldin var í dag 29.janúar 2014 á Sauðárkróki, undirrituðu fulltrúar níu sveitarfélaga samþykktir nýs byggðarsamlags sem fengið hefur nafnið Rætur bs. Tilgangur  samlagsins er að fara með málefni fatlaðs fólks á vestanverðu Norðurlandi.  Aðildarsveitarfélög byggðasamlagsins eru; Akrahreppur, Blönduósbær, Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Sveitarfélagið Skagaströnd.

Verkefni byggðasamlagsins var áður rekið af Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra eða allt frá árinu 1999. Stofnun nýs byggðasamlags mun ekki hafa áhrif á framkvæmd þjónustu við fatlað fólk á starfssvæðinu en mun skerpa enn frekar á ábyrgð  og samstarfi sveitarfélagana við veitingu þjónustu við fatlað fólk.

Í stjórn byggðasamlagsins sitja; Ágúst Þór Bragason Blönduósbæ, Ásta Björg Pálmadóttir Sveitarfélaginu Skagafirði, Ingvar Erlingsson Fjallabyggð, Skúli Þórðarson Húnaþingi vestra og Svanfríður Inga Jónasdóttir Dalvíkurbyggð.

 

Hér meðfylgjandi má sjá myndir af undirskriftum.

IMG_1647.jpgmyndmeðfrett.jpg

 IMG_1648 (2).jpgmyndmedfrett2.jpg

IMG_1653.jpgmyndmedfrett3.jpg

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?