Framkvæmdir að hefjast við viðbyggingu Grunnskóla Húnaþings vestra

Framkvæmdir að hefjast við viðbyggingu Grunnskóla Húnaþings vestra

Í dag var tekin fyrsta skóflustungan að viðbyggingu Grunnskóla Húnaþings vestra sem einnig mun hýsa Tónlistarskóla Húnaþings vestra.

Formlegur undirbúningur að byggingunni hófst 2017 þegar byggðarráð skipaði starfshóp sem meta átti þarfir skólans í húsnæðismálum. Í nóvember sama ár var haldinn fjölmennur íbúafundur um framtíðarskipan skólamála í Húnaþingi vestra. Í upphafi árs 2018 skipaði sveitarstjórn byggingarnefnd til að undirbúa viðbyggingu við grunnskólann og var nefndinni m.a. falið að vinna forskrift fyrir samanburðartillögukeppni um skólabygginguna þar sem þremur arkitektastofum var boðin þátttaka. Í framhaldinu var gengið til samninga við VA arkitekta. Byggingarnefnd vann síðan að nánari útfærslu og lausnum á fjölmörgum þáttum sem snúa að undirbúningi og hönnun viðbyggingar í samstarfi við VA arkitekta og hagsmunaðila. Þær áskoranir sneru mest að rýmisþörf tónlistarskóla, legu byggingar, aðgengi milli skóla og íþróttamiðstöðvar, aðkomuleiðir og lóðarhönnun.  Í mars 2019 var endurbætt tillaga kynnt sveitarstjórn og hagsmunaaðilum og í apríl sama ár var haldinn opin kynningarfundur á lokatillögunni.

Viðbyggingin tengist eldri skólabyggingu á norðurhlið. Hún er á einni hæð, en stallast í þrjá palla sem hækka með landinu. Kjallari er undir húsinu að hluta. Í nýbyggingu eru rými fyrir frístund, stjórnun, eldhús, mat-/samkomusal, tónlistarskóla, bókasafn, starfsmannaaðstöðu og þrjár kennslustofur fyrir unglingastig. Í kjallara er verkstæði, geymsla og tæknirými. Viðbyggingin er um 1200 fermetrar.  Verkið verður boðið út í átta áföngum og nú er að fyrsti áfanginn að hefjast.

Með viðbyggingunni mun starfsumhverfi kennara og nemenda gjörbreytast til batnaðar og auk þess sem fjölmörg tækifæri skapast með að hafa tónlistarskólann í sama húsnæði.  Það er því tilhlökkunarefni að  sjá nýja húsnæðið rísa og undirbúa samvinnu skólastofnanna tveggja undir sama þaki.

Áætlað er að skólahúsnæðið verði svo tilbúið og tekið í notkun haustið 2022.

 

Fyrstu skóflustunguna tóku Sigurður Ágústsson skólastjóri Grunnskóla Húnaþings vestra og  Louise Price skólastjóri Tónlistarskóla Húnaþings vestra .

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?