Framkvæmdir á skólalóð Hvammstanga

Framkvæmdir á skólalóð Hvammstanga

Í gær hófust framkvæmdir á skólalóð grunnskólans Hvammstanga.

Verkið snýr að endurgerð lóðarinnar sunnan- og vestanmegin við skólabygginguna.

Sett verða upp leiktæki og gengið frá yfirborði lóðar, sett upp lýsing, gróður, bekkir og borð. 

Þótt svæðið sé afgirt biðjum við foreldra að brýna fyrir börnum sínum að fara ekki inn á svæðið. Þar eru þungar vinnuvélar að verki og mikil slysahætta. 

Verktaki er Vogaklettur ehf. 

Áætluð verklok eru 15. ágúst, 2026.

Ábendingum varðandi framkvæmdina skal koma til verkefnastjóra umhverfismála á netfangið umhverfi@hunathing.is eða í síma 4552400.

Var efnið á síðunni hjálplegt?