Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Húnaþingi vestra 2026

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Húnaþingi vestra 2026

Framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga í Húnaþingi vestra, sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026, er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.

Tekið verður á móti framboðslistum á skrifstofu sveitarfélagsins föstudaginn 10. apríl kl. 11:00–12:00, eða samkvæmt nánara samkomulagi við:
- Ragnheiði Sveinsdóttur, sími 895 1905
- Gunnar Örn Jakobsson Skjóldal, sími 858 9216

Framboðslistum skal skila ásamt nauðsynlegum fylgigögnum.

Á framboðslista skal tilgreina skýrlega nafn frambjóðanda, lögheimili, kennitölu og stöðu eða starfsheiti þannig að enginn vafi leiki á því hverjir eru í kjöri.

Heimilt er að safna meðmælum rafrænt á island.is. Ef meðmælum er safnað á pappír skal skrá alla meðmælendur inn í rafrænt kerfi meðmælasöfnunar áður en framboði er skilað. Nánari leiðbeiningar fyrir framboðslista má finna á vefnum kosning.is.

Kjörstjórn mun úrskurða um gild framboð föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 12:00 og auglýsa þau í framhaldinu samkvæmt lögum. Umboðsmenn lista verða boðaðir á fund kjörstjórnar á sama tíma.

Kjörfundur verður haldinn í Félagsheimilinu Hvammstanga laugardaginn 16. maí 2026 kl. 09:00 – 22:00.


Kjörstjórn Húnaþings vestra

Sigurður Þór Ágústsson, formaður kjörstjórnar
Sími: 862 5466
Netfang: siggi@hunathing.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?