Frábær frammistaða í sundmaraþoni

Frábær frammistaða í sundmaraþoni

Glæsilegur árangur náðist í sundmaraþoni sem fram fór í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga föstudaginn 27. nóvember í tengslum við landsátakið Syndum sem stendur yfir dagana 1.-30. nóvember. 

Alls tóku 18 sundgarpar þátt í maraþoninu og syntu þeir samanlagt hvorki meira né minna en 78.670 metra! Til að setja þann glæsilega árangur í samhengi þá jafngildir það nánast vegalengdinni frá Hvammstanga til Búðardals í vestri eða Skagastrandar í austri!

Það var sérstaklega gaman að sjá hversu breiður aldurshópur tók þátt en yngsti þátttakandinn var aðeins tveggja ára og sá elsti 76 ára. Sund er svo sannarlega íþrótt fyrir alla aldurshópa!

Þrír þátttakendur syntu 14 kílómetra eða meira og lengsta vegalengdin sem einn einstaklingur synti var heilir 18 kílómetrar. Magnaður árangur!

Sundmaraþonið er frábært dæmi um hvernig við getum sameinast um hreyfingu og heilsueflingu, þar sem hvert sundtak telur og allir leggja sitt af mörkum, óháð aldri og getu.

Húnaþing vestra óskar öllum þátttakendum innilega til hamingju með frábæran árangur og þakkar þeim fyrir þátttökuna.

Vel synt, Húnaþing vestra! 

Stöðu sundlauga í Landsátakinu syndum má sjá hér. 

Var efnið á síðunni hjálplegt?