Frá Velferðasjóði Húnaþings vestra
Hlutverk sjóðsins er að styrkja einstaklinga og fjölskyldur fyrir hátíðir og merkisviðburði í fjölskyldu. Einstaklingar sem búa við þröng fjárráð geta sótt um fyrir 13. desember 2022.
Nánari upplýsingar hjá undirrituðum og í tölvupósti: siggi@hunathing.is
Húnaþing vestra, Húnavatnssýsludeild Rauða kross Íslands, Þjóðkirkjan og frjáls framlög standa að sjóðnum.
Fyrirtæki, vinnustaðir eða einstaklingar geta lagt inn á reikning Velferðasjóðs Húnaþings vestra, vilji þau styrkja sjóðinn.
Reikningsupplýsingar:
0159-15-380189 kt: 601213-0440
Með fyrir fram þökk til ykkar
Elísa Ýr Sverrisdóttir
Sr. Magnús Magnússon
Sigurður Þór Ágústsson