Frá leikskólanum Ásgarði.

Við leikskólann Ásgarð Hvammstanga er laus staða leikskólakennara í 100% starf.

Við leitum að einstaklingi með:

• Tilskilda menntun

• Skipulagshæfileika

• Lipurð í mannlegum samskiptum

• Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi.

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttar­félags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á www.leikskolinn.is/asgardur

Hugmyndafræði skólans byggir á kenningum Mihaly Csikszentmihalyi, flæði.

Umsóknafrestur er til 1. nóvember  næstkomandi. Umsókn  ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Ráðhúsinu, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

Frekari upplýsingar veitir Guðrún Lára Magnúsdóttir í síma 451-2343/891-8264

Leikskólastjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?