Frá Leikskólanum Ásgarði

Vegna slæmrar veðurspár fellur allt skólahald niður á morgun 08.12.2015, og verður leikskólinn því lokaður.

 

Athugað verður með stöðuna á veðurspá fyrir hádegi á morgun og þá metið hvort leikskólinn verði opnaður eftir hádegi eða frá klukkan eitt.

Foreldrar leikskólabarna eru vinsamlega beðin um að fylgjast með tölvupósti milli 11.00 og 12.00 á morgun.

Guðrún Lára Magnúsdóttir
Leikskólastjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?