Frá íþróttamiðstöð

spinning.JPGhjól.JPG

Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra hefur nú tekið í notkun nýtt „spinning“ hjól. Hjólið er af gerðinni Life Fitness Lifecycle GX og leysir af hólmi eldra þrekhjól. Nýja tækið nýtur nú þegar nokkurra vinsælda hjá iðkendum í þrektækjasal.

 

Tilboð óskast í „gamla“ hjólið, ef einhver hefur áhuga á að fjárfesta í ágætu tæki.

Nánari upplýsingar veitir Tanja Ennigarð, Íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnaþings vestra í síma 455-2406 og 858-1532 eða sundlaug@hunathing.is

 

 

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?