Frá Hitaveitu Húnaþings vestra

Á myndinni má sjá bilun á Melavegi
Á myndinni má sjá bilun á Melavegi

Vegna viðgerðar á heitavatnslögn á Melavegi verður lokað fyrir heitt vatn á Hlíðarvegi og Melavegi 6 og 8 frá kl. 13:30 í dag og fram eftir degi meðan á viðgerð stendur yfir.

Lokunin hefur ekki áhrif á sundlaug. 

 

Þjónusturof hitaveitu - ábending til húsráðenda
1. Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju með viðeigandi óhljóðum. 
2. Húsráðendum er bent á að við viðgerðir kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.
3. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við pípulagningameistara.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Sviðstjóri veitu-, framkvæmda- og umhverfissviðs.

Var efnið á síðunni hjálplegt?