Frá Grunnskóla Húnaþings vestra "Öskudagur 17. febrúar 2021"

Frá Grunnskóla Húnaþings vestra

Á nemendaráðsfundi þann 1. febrúar ákváðu nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra að ganga ekki í fyrirtæki í ár vegna COVID-19. 

Nemendur biðla þess í stað til fyrirtækja sem hafa glatt þau með nammi á öskudaginn að hafa samband við skólann sem mun sjá um að deila því meðal nemenda.

Nemendur hlakka svo til að ganga meðal fyrirtækja að ári og halda uppi hefðbundnum hætti. Skipulögð verður dagskrá fyrir nemendur í skólanum þennan dag.

Forsvarsmenn fyrirtækja sem vilja gleðja nemendur geta hafa samband við ritara skólans í síma 4552900 eða á netfangið grunnskoli@skoli.hunathing.is.

Athugið að skólinn er í vetrarfríi 15. og 16. febrúar.

Skólastjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?