Frá Fjölskyldusviði - samfélagsviðurkenningar

Frá Fjölskyldusviði - samfélagsviðurkenningar

Félagsmálaráð leitar til ykkar um ábendingar vegna samfélagsviðurkenningar fyrir árið 2019 – 2021.

Fjölskyldusvið Húnaþings vestra auglýsir eftir tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins um þá aðila sem þeir telja eiga skilið virðingarvott fyrir verk sín eða störf í þágu samfélags okkar.

Allir koma til greina, jafnt einstaklingar, fyrirtæki sem og félagasamtök, sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu látið gott af sér leiða og verið öðrum góð fyrirmynd.

Tilnefningar skulu berast fjölskyldusviði sveitarfélagsins með rökstuðningi, fólki er frjálst að senda inn nafnlausar tilnefningar.

Ákvörðun um hverjum skal veita viðurkenningu tekur fjölskyldusvið í samstarfi við félagsmálaráð sem sér um að veita viðurkenninguna

Tilkynning skal berast til Jennýjar Þ. Magnúsdóttur á netfangið:

jenny@hunathing.is. eða senda bréf í Ráðhúsið merkt; samfélagsviðurkenning, fyrir mánudaginn 20. september n.k.

Fyrir hönd félagsmálaráðs

Jenný Þórkatla Magnúsdóttir Sviðsstjóri fjölskyldusviðs.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?