Frá Byggðasafninu "G - vítamín"

Frá Byggðasafninu
Komdu við hjá okkur á Byggðasafninu og fáðu þér G-vítamín!
Í tilefni af átaki Geðhjálpar verður frítt á safnið á morgun, 10. febrúar. Safnið verður opið frá kl. 9-13:30 og 15:30 til 17:00.
Við lokum safninu frá 13:30-15:30 á meðan við kennum nemendum frá Skólabúðunum
Hlökkum til að hitta ykkur.
 
Frítt inn á valin söfn í samstarfi við sveitarfélög um land allt miðvikudaginn 10.febrúar. Geðhjálp stendur fyrir átakinu G-Vítamín á þorra þar sem verndandi þáttum geðheilsu er gefinn gaumur. Alla daga þorrans er bent á eina aðgerð á dag sem nota má sem G-vítamín. Miðvikudaginn 10.febrúar er G-vítamín dagsins að „Gleyma sér“. Því er tilvalið að fara á safn sem er góð leið til að gleyma sér og njóta menningar og listar í leiðinni. Endilega nýtið tækifærið, ef ekki á þeim degi, þá þegar hentar. Það er verðmætt að leyfa sér að gleyma sér. Frekari upplýsingar um söfn sem taka þátt á gvitamin.is.
Það þarf ekki að skrá sig til að fá aðgang að söfnunum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?