Forstöðumaður safna í Húnaþingi vestra - afleysing

Vegna fæðingarorlofs er laust til umsóknar tímabundið starf forstöðumanns safna í Húnaþingi vestra. 

Húnaþing vestra óskar eftir að ráða afleysingu fyrir forstöðumann safna í Húnaþingi vestra í tímabundið starf, frá 1. maí nk. til 1. mars 2022. Starfið er fullt starf.

Forstöðumaður ber ábyrgð á starfsemi safna sveitarfélagsins, bókasafni, héraðsskjalasafni, byggðasafni og fjarvinnslustofu, þjónustu þess og samstarfi við aðila innan og utan sveitarfélagsins. Safnamál heyra undir fjármála- og stjórnsýslusvið sveitarfélagsins.

Starfssvið:

  • Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á rekstri safna sveitarfélagsins.
  • Ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu safnkostar þannig að hann styðji sem best við starfsemi safnanna.
  • Yfirumsjón með stafrænum tímaritakosti bókasafnsins og öðrum gagnasöfnum.
  • Yfirumsjón og utanumhald um notkun og þróun skjalastjórnunarkerfa í samstarfi við sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.
  • Viðhald og þróun á þeim hluta heimasíðu sveitarfélagsins sem varðar söfnin.

Menntun og hæfniskröfur:

  • Haldgóð menntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla af skjalavörslu æskileg.
  • Haldgóð reynsla af rekstri.
  • Starfið gerir kröfu um góða stjórnunar- og samskiptahæfni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið gefur Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri- og stjórnsýslusviðs. Umsóknir skulu sendar í tölvupósti á netfangið ellajona@hunathing.is.

Umsóknarfrestur er til 25. febrúar nk.

Var efnið á síðunni hjálplegt?