Foreldrar og forráðamenn í leik- og grunnskóla

Leikskóli og frístund í grunnskóla opna degi fyrr en áætlað var þar sem námskeiði starfsmanna skólanna um innleiðingu á jákvæðum aga hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna COVID-19. Báðar stofnanir opna kl. 10:00 fimmtudaginn 13. ágúst. Starfsfólk mun undirbúa móttöku nemenda eftir sumarfrí frá 8:00 - 10:00.

 

Stefnt er að því að halda námskeiðið síðar þegar samkomutakmarkanir leyfa og þá verður leikskóli og frístund lokuð. Ekki er vitað á þessari stundu hvenær það gæti orðið en verður auglýst með góðum fyrirvara.

 

Minnt er á  að 2 metra fjarlægðarregla er í gildi og foreldrar beðnir um að virða hana við aðra foreldra við komu í skólana og við starfsfólk. 

 

Sjá nánar á heimasíðum skólanna.

Heimasíða Grunnskóla Húnaþings vestra

Heimasíða leikskólans Ásgarðs

 

​Skólastjórnendur

Var efnið á síðunni hjálplegt?