FORELDRAR FORRÁÐAMENN

Nú hlakka allir til að fara á þorrablót, ekki síst unglingarnir.  Það er líka gaman að koma saman, borða þorramat, hlæja yfir skemmtiatriðum og  dansa  fram á nótt.  En við vitum að á þessum skemmtunum er áfengi haft um hönd.

Við viljum hér með hvetja ykkur, kæru foreldrar og forráðamenn  til þess að taka meðvitaða ákvörðun um hvort unglingurinn ykkar fær að fara á þorrablót. Þó  að aldurstakmark fyrir þorrablót sé oftast 16 ár þá má ekki gleyma því að ábyrgð foreldra/forráðamanna nær til 18 ára aldurs og aldurstakmark áfengisneyslu er 20 ár!

Hvert ár sem unglingur bíður með að smakka áfengi skiptir miklu þegar horft er til alvarlegra afleiðinga áfengisneyslu.

Stöndum saman í því að sýna ábyrgð og munum að það er okkar að hugsa um heilsu og framtíð einstaklinga sem eru í okkar umsjá!

 

                                                                                              Stýrihópur um forvarnir í Húnaþingi vestra

Var efnið á síðunni hjálplegt?