Flokkun til fyrirmyndar í Húnaþingi vestra

Flokkun til fyrirmyndar í Húnaþingi vestra

Flokkun til fyrirmyndar í Húnaþingi vestra 

Á fundum með sorphirðuverktaka hefur ítrekað komið fram hversu vel er flokkað í Húnaþingi vestra og það mikla magn sem er að skila sér.

Á þetta við almennt í bæði þéttbýli og dreifbýli en sérstakt hrós fá þó bændur fyrir frágang á áburðasekkjum og rúlluplasti.  Sjá facebook síðu Flokku ehf.  Flokka ehf. tekur við efninu af verktaka og flytur m.a. til Hollands til endurvinnslu.

Almennt um flokkun og endurvinnslu í Húnaþingi vestra

Plast og pappír

Ekki er þörf á því lengur að setja plast/plastumbúðir saman í plastpoka áður en sett er í endurvinnslutunnuna. Nú má plastið fara laust í tunnuna með pappír, pappa og málmum.

Undantekning er þó sú að ef farið er með plastumbúðir í lúgurnar á girðingu Hirðu, þá er mælst til að plastið sé saman í plastpoka til að hindra fok þegar verið er að losa sekkina.

Ef komið er með efni í endurvinnslu á opnunartíma Hirðu, vinsamlegast hafið samband við starfsmenn Hirðu frekar en að setja beint í lúgu.  Það sparar starfsmönnum sporin að geta komið efninu beint í pressugáma.

Á gámavellinum eru tveir pressugámar, annar fyrir pappír og pappa og hinn fyrir plast. Það þarf td. ekki að brjóta saman pappakassa áður en þeir eru settir í gáminn vegna pressunnar í gámnum.

Allt endurvinnsluefni sem kemur inn á völlinn er að sjálfsögðu hægt að skila án sérstaks gjalds.

Það er greinilegt að íbúar Húnaþings vestra hafa metnað til þess að gera vel þegar kemur að flokkun og endurvinnslu og fylgjast vel með þeim leiðbeiningum sem sveitarfélagið hefur sett fram í málaflokknum á undanförnum árum.

Áfram Húnaþing vestra!

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?